Hér kemur að þvi !!!
Ég er ekki búin að blogga í dágóðann tíma, afhverju? jú vegna þess
að hann elskulegi Dóri minn kom til mín 12. október síðastliðinn og
var hjá mér til 23. október síðastliðinn. Hef ég ekki komist í
réttu tölvuna til að blogga síðan hann fór, en hér kemur að þessu
sem allir hafa beðið eftir!!!
Þetta byrjaði þannig að ég vaknaði
með rosalegan hnút í maga, af spenningi!!
Fór svo uppá flugvöll að sækja sæta strakinn minn klukkan að verða
fjögur a þessum fagra fimmtudegi. Æðisleg tilfinning að fá hann!
ohhh
Fórum svo til Berlínar á
föstudeginum 13. oktober en ekkert hræðilegt kom fyrir og
sluppum við vel úr þessum degi.
Berlín.
Við auðvitað byrjuðum á því að
fara uppá Hostelið okkar sem var svo á þessum frábæra stað, þetta
var meira svona unglingahostel og var þarna allt í kring og ekki
erfitt að rata!
Við fórum nú í þennann stóra göngutúr í leit að Tiergarten, sem að
Dóri var svo 100% viss um að væri dýragarður, og var komin mikil
tilhlökkun í okkur að fara að sjá öll stóru ljónin!! Við erum búin
að labba svona ca. 5 km, þegar við sjáum loksins lítið skilti sem
sýndi Tiergarten og urðum við fyrir þeim vonbrigðum að þetta var
enginn dýragarðu !! :/ en við hoppuðum upp úr þeim vonbrigðum eftir
stuttann tíma og röltum bara aðeins i gegnum þennan fallega garð og
fórum svo upp á hostel aftur að kvíla okkur 
Svo gerðist einn merkur hlutur hjá
mér!! og dóra líka, en ætli þetta sé ekki örlítið mér að
kenna..kemur fyrir!!
Við semsagt ákváðum að kaupa okkur lestarkort yfir daginn og fara á
smá ráp um borgina. Svo var þarna lest númer 25 og ég bara "já
þetta er lestin okkar", en nei viti menn, það var greinilega búið
að segja í kallkerfið "EKKI stíga inní lest 25, hún er að fara að
taka sér pásu"!!!! og þarna sátum við í sakleysi okkar. Svo segir
Dóri allt í einu "Lóa, þú veist samt að það er enginn hérna inni,
lestin er TOM!!", núnú segi ég heyrðu förum þá út, nei við vorum of
sein að fatta og lestin skrítlaðist af stað með okkur aðeins 2
inni... svo segi ég, neinei dóri þetta er allt í lagi, hún er nú
varla að fara að taka sér pásu svona snemma, klukkan aðeins 4 að
degi til. En þegar ég lauk við þessi orð mín slökknaði á lestinni
og ég hélt ég yrði ekki eldri, engin innistæða á símanum eða neitt
og við inni í lest og sáum bara svart úti!!!
Lestarstjórinn kemur svo í vagninn sem við erum í, og jesús að sjá
svipinn á honum hahahaha, en svo sagði hann okkur að hann væri bara
í pásu og lestin fer aftur af stað eftir 5 mínútur, úff það var sko
léttir.
Í þessari lestarferð miklu þennann dag, ákváðum við að skröltast út
í Nordbahnhof, vegna þess að okkur fannst þetta svo áhugavert nafn,
við röltum þarna út og sáum aðeins 2 manneskjur og nokkra bíla. Við
litum a hvort annað og ákváðum með því lúkki að koma okkur bara á
einhvern annann stað... En viti menn hluti af Berlínarmúrnum var
bara nokkrum skrefum við hliðiná okkur í Nordbahnhof.
Við föttuðum það ekki fyrr en næsta dag og fórum aftur þangað og
sáum þennann merka Berlínarmúr, mér brá vegna þess að ég hélt þetta
væri eitthvað rosalegt listaverk allt saman en dóri leit bara á mig
og sagði "Er ekki allt í lagi með þig, ekki hélstu að fólk í gamla
daga hafi verið herna að búa til einhvern rosalegann múr" og síndi
mér alveg rosalegann svip.. er ég vitlaus??
Vá líka sáum við svona flóamarkað,
og við erum að tala um það að þetta var bara allt af götunni,
fólkið sem var með þennann flóamarkað var líka bara af götunni og
þegar við Dóri komum þarna þá voru þau með svona ruslatunnu alla
riðgaða og voru að henda bókum ofaní til að fá eld og grilluðu svo
pylsur ofan á. þetta fannst mér merkilegt!
En í Berlín sáum við margt mjög
fallegt og mæli ég með því að fara þangað og skoða þessa fallegu
borg, alveg hreint æðisleg ;-)
Hamburg.
Svo vorum við auðvitað í Hamburg,
vegna þess að þar bý ég, jújú mikið rétt.
Þar var farið nokkrar ferðir í
Hauptbahnhof (aðal-lestarstöðin) og rölt svo í bæinn að versla sér
föt (brekst ekki) og skoðað bæinn. Við löbbuðum mjög mikið og
skoðuðum helling af flottum byggingum.
Einnig spörðuðum við ekki peninginn og keyptum okkur bæði nóg af
fötum... Einnig var líka ákveðið að vera rosalega feitur á meðan
Dóri var hérna, og má segja að við borðuðum eigilega bara á
McDonalds og Burger King :/ ekki nógu gott, en samt gott.. æji þið
vitið hvað ég á við 
Eitt skipti í Hauptbahnhof vorum
við að rölta útaf McDonalds (kemur á óvart) og heyrum þessi
svakalegu læti!, lítum svo niður (vorum a annarri hæð) og sjáum þar
u.þ.b. 25 löggur vera að ræða malin (þær voru sko með byssur og
læti
) og eitthvað fólk var sem sagt að fara á fótboltaleik og var
með þessi brjáluðu læti og löggan að fara að stoppa þetta, held
ég.
Ojjj, við fórum út að borða eitt
kvöldið á einhverju rosalegu steikhúsi, og ákváðum að hafa þetta
rosalega fínt allt og fá okkur forrétt. Við auðvitað vissum ekkert
hvað við vorum að panta okkur en fengum þetta a borðið, þetta var
hrátt kjöt, við vorum alveg viss um það!!!
Ógeðslegt!!!
Man. Utd - Liverpool var sýndur
meðan Dóri var hérna og vildi hann svo mikið horfa á hann. En
þjóðverjar eru lítið fyrir enska boltann og vorum við þvi alveg
pottþett að hann væri hvernig síndur. Viti menn við vorum á röltinu
í einni skoðunarferð, svo sér Dóri sjónvarp inni á einhverju
kaffihúsi og ég get svo svarið fyrir það hann hoppaði af gleði því
leikurinn var jú síndur þar! Mikil gleði...
Kvöld eitt í
kotinu
Við vorum sem sagt að fara að sofa
þann 21.okt. og lágum þarna bæði með bók að lesa!!! Er það ekki
eitthvað sem á að gerast þegar maður er giftur og ´buinn að eignast
5-6 börn?? Nei kannski ekki, en við hlóum bæði að þessu og fannst
þetta pínulítið skrítið hehe..
Dóri suðaði í mér eitt kvöldið að
sækja fyrir sig eplasafa uppi. NEI sagði ég margoft, því ég var jú
að lesa, alveg eins og hann!
Komst ég að því að hann er myrkfælinn kallinn, já margt kemur
manni á óvart, og jú hann er líka lofthræddu.. æji krútt
Um
bloggið
Hey, til þess að ég muni alla
hluti sem ég vil blogga um, þá ákvað ég að fara og kaupa mér
svokallaða blogg-bók. Jú ég hef hana alltaf á mér og ef það gerist
eitthvað skemmtilegt til að blogga um, þá skrifa ég það niður,
töffari
Pink
Okey, ég er að fíla nýjasta Pink
diskinn í tætlur, þið hafið bara ykkar skoðun á því en já góðar
fréttir fyrir mig, það eru Pink tónleikar hér í Hamburg þann 12.
desember næstkomandi, og mun hún Lóa líklegast fara, mikil gleði
með það.
Myndir
Með myndirnar, ég bara næ ekki að
setja þær inn, og verð því bara að afsaka mig enn og aftur, en ég
tók um held ég 250 myndir þegar dóri var hérna svo ef þær koma
einhverntímann inn þá verður sko nóg að skoða.. höldum í vonina!!
heyrheyr
Lokaorð
Ég held ég se búin að blogga of
mikið, en það gerir það bara skemmtilegra, eins og ég segi þá
hafiði allavega 5 daga í að lesa það, því eg blogga ekki oft.
Vil eg lika biðja fólk sem skoðar síðuna mína að fara inn á
www.blog.central.is/katrinmist
og fara í Ólafía Kristín sem er
neðarlega á síðunni og lesa það sem hún skrifaði, þetta lísir því
mjög vel hvernig samband okkar systranna hefur verið. Mér fannst
þetta allavega æðislegt hjá stelpunni. Endilega athugið þetta

Kveðjan
Þá er þetta komið gott, kveð í
bili og vonandi njótið þið blogganna minna, og endilega kvittið í
skoðanir eða gestabók, bara fyrir komuna 
Þangað til næst
Lóa-bloggari